Flytjandi: Trúbrot
Titill: Undir áhrifum
Ár: 1970
Undir áhrifum var tekin upp í Wifoss studio í Kaupmannahöfn, Danmörku í október 1970 á 10 rása upptökuvél eins og segir í bæklingi plötunnar. Upptökumaður var Philip Wifoss. Platan kom fyrst út á vegum Fálkans í nóvember 1970. Forsíðumynd á umslagi plötunnar tileinkaði sveitin náttúruvermd og er af öskuhaugum Keflavíkurflugvallar. Í plötubæklingi er skemmtileg og nokkuð löng upptalning á áhrifavöldum sveitarinnar allt frá New York og lauslæti til forlaga og dauðans. |