Flytjandi: Hljómar
Titill: Hljómar 2004
Ár: 2004
Hljómarnir eru í essinu sínu á þessum nýja diski. 12 frábær lög með textum eftir annálaða textahöfunda eins og Guðmund Andra Thorsson, Einar Má Guðmundsson, Þorstein Eggertsson o.fl.
Á disknum má finna lög eins og: Upp með húmorinn, Eitt lítið stef og Geggjuð ást sem öll hafa heyrst á öldum ljósvakans að undanförnu. Hljómarnir eru frumkvöðlarnir og aðrir eru sporgöngumenn þeirra - nýr geisladiskur frá þeim félögum er því alltaf stórfrétt sem tónlistaráhugamenn fagna.
Síðan Hljómarnir fóru aftur á stjá í kringum 40 ára afmælið hafa þeir ferðast um landið og spilað fyrir fullu húsi trekk í trekk. Það er ljóst að keflvíska bítlið kom til að vera haustið 1963! |